Eybbublogg.is

ó plííííssss.....

10.03.2008 12:47:07 / eybbublogg

Smá updeit

Er að drífa mig...er að fara að vinna:)

ENNNN...VIÐ ERUM BÚIN AÐ SELJA...JEIJJJJJJJ:D
Og erum komin með íbúð hérna í sandgerði..erum að fara að leigja...:D Ennnn það er svona það helsta í augnablikinu!!!! Ég þarf klárlega að fara að sparka í rassgatið á sjálfri mér og fara að sinna þessum ritarastörfum hér...hef heyrt að fólk sé bara að brotna niður þegar það fer hér á eybbubloggið í fíluferð!!! Ennnn er ekki bara málið að blogga í kvöld...við sjáum til,sjáum til!!! En ég  lofa ég mun standa mig fyrir ykkur kæru bloggskoðarar..það var bara vandamál með þessa síðu svo lengi..svo bara á endanum HVARF hún:S En þetta er allt að komast í lag og nú er bara bloggtíðin að fara að hefjast...endilega haldið áfram að kíkja og kommenta...OFF 2 WORK!!! bææ

Góðar stundir
Eybbs.

» 6 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 17:33:29 / eybbublogg

Er þá svona fyrir mér komið?

það er svo mikil gúrkutíð í blogginu að maður þarf að fara á google og flétta upp gömlum bloggum frá sér....:) En mér fanst þetta svo skemmtileg lesefni að ég varð að koma með þetta aftur bara:) Enda líka að verða að koma 3 ár síðan þetta var skrifað á gamla blogginu mínu:) já það er ekki verra að vera svona mikill snillingur að maður getur bara endalaust COPY/PASTE-AÐ og fólk hefur samt endalaust gaman að manni...hugsið um þetta..þetta er alls ekki sjálfgefið sko:)

En góða skemmtun:)

 

________________________________________________________________________________________________

20.03.2005 00:45:24[miss]

________________________________________________________________________________________________

  hææææææææææ  

 jæja LOKSINS0 hehehe er ekki alveg búin að vera að standa mig í þessu bloggi mínu ennnn þetta kemur 0 Alveg ótrúlegt með mig stundum hvað ég byrja á fullum krafti í einhverju en svo...ahhhh er einhvað sem klikkar..0 EN það er bara ég,ekkert við þessu að gera svosem hehehhe0

Það er svosem ekkert nýtt að frétta og þó það væri einhvað nýtt að frétta þá myndi ekki skippta neinu hvort ég myndi skrifa það hingað, það eru örugglega allir hættir að kíkja hér við á "blogg rúntinum" sínum0 En ég skil þá vel sem eru hættir því,enda aldrei neitt nýtt að sjá svosem en í þetta skipti ákvað ég að láta plön mín og framtíðaráætlanir fylgja með svo að þið getið svona "asjúmað" hvað ég er að gera0

Fyrst sæki ég um að komast að í þættinum You are what you eat og kemst þá
að því að matarræðið er snarbilað, en eftir að kellingin fer þá held ég
samt bara áfram að éta og fitna meira. Þá fer ég í megrunarkeppnina The
Biggest Loser og næ af mér nokkrum kílóum. Nú til að fá final touchið á
þetta þá fer ég í The Swan og fer í nokkrar lýtaaðgerðir og fitusog, ekki
veitir af.. en í lokaþættinum þá kemst ég ekki áfram í fegurðarsamkeppni
the Swan, þannig að þetta hefur ekki virkað alveg. Þá fer ég í Extreme
Makeover og læt taka mig ærlega í gegn, skipti bara um andlit og sýg alla
fitu úr líkamanum.

Þá er ég heldur betur orðin flott og fer í Americas Next Top Model þáttinn
og geri gott þar.. en tapa. Nú er ég orðin soldið fúl og einmana, á engan
kall nebblega. Best að fara í Bachelorette og ná mér í einn ríkan og
myndarlegan. Geri það, en þegar þáttaröðin og það er búið, vantar einhverja
spennu í sambandið, þannig að við förum í Temptation Island.... en þar endar
það með að við hættum saman því við héldum bæði framhjá. Þá langar mig bara
að vera dáldið sjálfstæð og verða rík..

Þannig að ég fer í Survivor, þrauka alveg í 36 daga en lendi í 3. sæti ohhh
ég fæ ekki einu sinni 100 þús dollara.. fer heim, alveg í rusli. En ég er
ennþá sæt eftir lýtaaðgerðirnar og sílíkonbrjóstin hanga ennþá uppi.. og
þar sem mig langar aftur í kærasta, þá skrái ég mig í Djúpu laugina.. næ
mér þar í einhvern lúða sem býr í ljótri íbúð í Fellunum og er frekar
subbulegur. En það er allt í lagi, ég hringi bara í vini mína í Queer eye
for the Straight Guy og þeir koma og henda manninum mínum í klippingu og
kaupa ný föt á hann, rí-dekkorreita svo íbúðina, allt voða flott og hann
biður mig um að giftast sér í lok þáttarins, sem ég geri.

Við förum þá auðvitað með brúðkaupið í Brúðkaupsþáttinn Já og vinnum svo
ferð í Karabíska hafið, voða rómó. En á skemmtiferðaskipinu þá verð ég
ólétt.. eignast svo krakka og eftir 2 ár er hann farinn að stjórna öllu,
þannig að ég hringi í The Nanny og fæ hana til að kenna okkur að ala upp
krakkann og láta hann ekki ráða öllu.

Nú er allt komið í drasl aftur.. Þannig að ég hringi bara í Heiðar vin minn
Snyrti og fæ hann að koma með þáttinn Allt í drasli og taka til.... vá hvað
það verður allt fínt hjá okkur! Þá er nú kominn tími til að hringja í Völu
og við komum í Innlit Útlit, en við þurfum svo að stækka við okkur því að
það er annað barn á leiðinni, þannig að við förum bara með íbúðina í
þáttinn Allt undir einu þaki, seljum hana og kaupum stærri.

Árin líða og þetta endar allt með því að ég er búin að skilja við kallinn
sem hélt framhjá mér, lýtaaðgerðirnar sem voru gerðar fyrir 15 árum komnar
í klessu, ég er ljót, feit, einstæð 2ja barna móðir sem á ekki neitt..
þannig að ég fer bara í Fólk með Sirrý og væli yfir þessu öllu saman!

pís át0

Eybba


» 9 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 17:44:38 / eybbublogg

Versti dagur ársins....?????

Hvernig var dagurinn hjá ykkur??? :)

http://mbl.is/mm/frettir/taekni/2008/01/21/versti_dagur_arsins_i_dag/

 

gaman að þessu.... blogga í kvöld:) eða kanski eftir ÖLD...hahahaha ég er nottla að kafna úr húmor sko:)

síjú gæs

eybbs


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.01.2008 02:10:51 / eybbublogg

Þetta eru engin geimvísindi skohhhh!

Þvílík snilld sem þessir þættir eru...ég hló mig máttlausa.

það er svo fáránlegt þegar maður er að byrja að skrifa bloggfærslu að maður veit aldrei hvernig maður á að byrja...ef að það væru reglur yfir þetta og það væri skilda að byrja bloggfærslurnar alltaf á sama hátt þá myndi ég blogga miklu oftar því ég veit aldrei hvernig ég á að byrja... Nú ætla ég að taka mig á í blogginu..reyna að fara að blogga bara DAGLEGA!!!!!! já maður er ávallt bjartsýnn með plottinn sín góðu...en að standa við þau er annað mál. Ef að ég hefði alltaf staðið við mínar fyrirætlanir þá væri ég í dag ofurgrönn súperskutla sem væri nýbúin að ljúka háskólaprófi...ætti skuggalega flott einbylishús með sundlaug og myndi ekki skulda krónu! EN...Ég segji eins og Dóra sagði alltaf þegar við bjuggum í verbúðinni á Djúpavogi hérna í denn...LÍFIÐ ER EKKI LAKKRÍS...ég akkúrat andstæðan við þetta...reykniði dæmið:)

Bíddu...hver segir að það sé ekki TÖFF að vera GOTH??

 

Takk fyrir commentin pípol...og I LOVE u2 Dadda:)

Ef þið bara vissuð hvernig manneskja hún Dadda mín er....alltaf verið fyrirmyndin mín... alltaf litið upp til hennar...Hún er frábærust og yndislegust. Bestust :)

Svo er hún auðvitað SÆTUST:) (Þarna er hún með Antoníu Dúllufrænku dóttir hennar Jennýar)

Það er bara verst að maður geti ekki hefnt sín með því að setja inn hryllingsmyndir af Döddu hérna inná bloggið....henni finnst svo gaman að setja hryllingsmyndir af mér inná síðuna hjá strákunum...hehehe það er kanski spurning um að maður fari að vinna í því að smella inn myndböndunum sem tekin voru heima hjá mömmu...HA Dadda???? :)

En ein svona í lokin BARA til að sýna HÆFILEIKANA....Haldiði að Frú Fimbjörg hafi ekki farið í TWISTER eftir jólasteikina á jóladag og borið sigur úr bítum???? maður er nottla bara að missa sig úr hæfileikum....:D

(mikil keppni á milli mín og döddu:)

 En ég er farin að sofa... Góðar stundir:)

Kv, Eybba


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.12.2007 16:48:43 / eybbublogg

Sólbjörg Laufey Vigfúsdóttir

Já ég sagði henni að ég ætlaði að búa til bloggfærslu bara um hana:) Here jú gó:)

Sólbjörg Laufey...eða Laufey eins og hún er alltaf kölluð er yndisleg manneskja. Hún er Þrjósk og þver fram í fingurgóma...enda er hún naut þessi elska:)Hún er EKKI og ég endurtek EKKI morgunglaðasta manneskja sem þú finnur:/ óneiiiiii.... Ef þú sérð manneskju með hárið útí loftið,stírur í augunum,með ilsku svip að þræta fyrir að hún hafi sofnað...þá er það hún laufey nývöknuð hhehehe:) En hún laufey sofnar ALDREI í sófanum. Það er bara ekki möguleiki að það geti gerst,eins undarlegt og það hljómar. Þó hún sé með lokuð augun og farin að hrjóta þá er hún sko EKKI sofandi..og ef manni grunar það nú samt og ýtir í hana og segir "laufey,varstu sofandi" Þá hvessir hún augun og hreytir í mann "er ekki alltílagi?" :D I love jú svefnpurkan mín:)

Ég og Laufey erum mjög líkar að mörgu leiti (enda báðar naut) Fyrir utan það að vera báðar þrjóskar og þverar þá deilum við líka því að geta vellt okkur uppúr öllu mögulegu og verið hræddar við það. OG við erum snillingar í að hræða hvor aðra:S (það hefur nú sem beturfer minkað hehehe) Sem betur fer eru herþoturnar farnar...það var bara spurning á tímabili hvor fengi á undan taugaáfall...hahahah! Og fuglaflensan...hvenar kemur fuglaflensan? kemur hún? *naganögl* En kjarnorkusprengjur...hvernig virka þær? ætli að það komi kjarnorkustríð? *nagaaðranögl* Já svona gátum við vellt okkur uppúr þessu daginn út og daginn inn.... Þetta var því miður ekki eina sem við vorum að hræða hvor aðra með...heldur er þetta bara toppurinn á ísjakanum sko;) En eins leiðinlegt og þetta hljómar að vera hræddur um eitthvað svona..þá er ekki hægt að seigja að okkur hafi leiðst að tala um þetta...ó nei. Það vara bara gaman sko...hehehehe þó maður sæti drulluhræddur eftir samtölin:S það er önnur saga:)

En þú þarft að leita langt ef þú ætlar að finna eins góða vinkonu og hún Laufey er. Hún er alltaf tilbúin til þess að gera allt fyrir mann. Ef að það er eitthvað að þá er hún boðin og búin til þess að hjálpa manni eins og hún getur. Það er alltaf hægt að tala við hana...og maður getur líka treyst því að það sem maður segjir henni fari ekki lengra:) Hún er líka órhædd við að segja sínar skoðanir á hlutunum og þótt að maður svíði stundum að heyra þær (svona stundum:)) Þá getur maður samt treyst á það að hún segji manni hvað henni finst og er ekkert að fara í hringi með það. Þannig manneskja er Laufey....Hún kemur til dyrana eins og hún er klædd. Ef hún er pirruð...ÞÁ ER HÚN PIRRUÐ:) Og ef henni mislíkar eitthvað sem þú segjir við hana þá lætur hún heyra í sér....já það er eiginleiki sem margir vildu hafa..að geta svarað fyrir sig... Laufey er með bein í nefinu og stendur á sínu:)

Laufey er hörkudugleg og klárar það sem hún bryjar á. Það er sama hvað það þarf að gera...hún setur það ekki fyrir sig. Nei ekki hún Laufey. Hún er dugleg bæði í vinnu og heima hjá sér. Það er alltaf spikk og span heima hjá laufey þegar maður kemur (þó hún reyni að þræta fyrir það...) Allt hreint og fínt og kósý....alltaf kósý að koma heim til þeirra Laufeyjar,Óskars og Elmars. Og í vinnuni er hún að brillera...Hún vinnur á Leikskóla og þar á hún að vinna. Hún smitar út frá sér gleði og ánægju í starfi. Það er æðislegt að vinna með henni...sama hvort það er við það að skúra (eins og´hérna í denn;) eða á Leikskólanum:) Þó þú værir að vinna við það að moka skít þá væri það samt gaman....ef að þú ert að vinna með Laufey:)

Laufey er alltaf HRESS og skemmtileg....Yndisleg og æðisleg.

Ég gæti haldið endalaust áfram að tala um hana en ég ætla að láta þetta gott heita í bili..ég er viss um að hún sé farin að roðna á tánum núna;)

Love jú sæta

kveðja Eybba:)


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 03:58:14 / eybbublogg

skömmin komin aftur

já er orðin þreytt á því að vera ekki að blogga:) Ég er svo mikill blogger í eðli mínu að þetta var farið að vera erfitt!!!!

Vá hér sit ég,klukkan að skella í fjögur og það er komin 23 desember í dag:) Mamma mín á afmæli í dag og óska ég henni innilega til hamingju með það:D (þó svo að ég viti vel að hún er ekki sú tæknivæddasta og á mjög líkalega ekki eftir að ramba inná þessa síðu...:)) En maður veit aldrei;) já,jólin á morgun...úff hvað þetta er fljótt að líða. Eða jólin eru eiginlega ekki á morgun heldur hinn svona þannig séð:) Það er ekki laust við að ég sé komin í smá jólafíling, enda var staðið í stóru í kvöld að pakka öllum gjöfunum inn:) Þetta krafðist samvinnu. Þetta var úthugsað hjá okkur á Bjarmalandinu:) Ég stóð og pakkaði inn gjöfunum,rétti pakkann áfram þar sem Þorbjörg stóð á stól og tók við honum og rétti hann áfram til pabba síns sem sat við eldhúsborðið og setti skrautböndin á :) Þetta var rosastuð með jólatónlistina í bakgrunninum....og svo fór að snjóa úti:) Mér fanst bara eins og jólin hefðu komið,bankað uppá,ætt inn...og slegið mig í hausinn8| svo jólalegt var þetta :D já það er gaman að þessu.

Ég er komin í jólafrí....það er auðvitað voða næs... Ég fer ekkert að vinna aftur fyrr en 2 janúar:) Ég var að vinna í gær og fyrsti dagurinn minn í jólafríínu í dag OG MÉR ER STRAX FARIÐ AÐ HLAKKA TIL AÐ MÆTA AFTUR Í VINNUNA :) Ég er farin að hallast að því að ég sér meira crazy en ég gerði mér grein fyrir:) hehehe. Nei þetta er kanski ekkert svo skrítið... Ég er svo heppin að vinna á leikskóla og nýt þeirra forréttinda að vinna með svo yndislegum börnum:) OG eins og það sé nú ekki nógu mikill plús þá er ég að vinna með YNDISLEGU starfsfólki og yfirmönnum líka;) Það er ekki skrítið að mér hlakki til að mæta aftur í vinnuna... Nei hættu nú alveg...var að lesa þetta yfir sem ég skrifaði og það er engu líkara en að jólaandinn sem braust inn hjá mér áðan hafi pissað í glasið mitt.... ég er svo hrikalega væmin að ég er örugglega ölvuð af jólaanda:) hafið þið upplifað það? ;)

 jæja komin tími til þess að skríða inní rúm....ÞAÐ ERU ALVEG AÐ KOMA JÓL:D

Góðar stundir,

Eybba.


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.09.2007 01:17:15 / eybbublogg

Já fínt,já sæll!!!! Snilld:)

Jæja hvað segir fólkið? Það er orðið hálf dagpurlegt hjá mér bloggið upp á síðkastið... HEF EKKERT AÐ SEGJA...langaði bara að pósta inn einni færslu eða svo;)

Haldiði ekki að mín sé að fara í freestyle dans...já maður verður að sýna hæfileikana,því þeir leinast á ýmmmsum sviðum:) neiii ég er nú bara að fara til að hafa gaman að þessu sko. Ég held að við verðum 12 eða 13 Grindarvíkur stelpur í þessu...Ég man ekki alveg hverjar verða en þetta verður bara gaman sko;) Hlakkar bara til:)

Jæja nú fer að styttast heldur betur í jólin sko....úff. nokkrir dagaaar eða svo...;) Assskoti fljótt að líða hmmmm... vá hvað ég hef ekkert að tala um,farin að tala um jólinnnnnn hahahahaha. SLAPPTTTTTTT!!!!!

Nenni ekki meiru í bili...:P

góðar stundir,

Eybbsí


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 21:09:14 / eybbublogg

Gasalega lekkert!

Eða ekki?

Hef ekkert að segja langaði bara að kasta kveðju á ykkur lesendur góðir:) Ég fann eina mynd af netinu og hún er að gera mig VITSTOLA og ég ætla að biðja ykkur um hjálp

sko þið verðiið að telja kallana,bíða eftir að myndin færist og telja kallana aftur (með réttu eru þeir 12 og svo 13,eða öfugt!) HVAÐAN KEMUR ÞESSI FJÁRANS AUKA KALL :( Mig langar að fara að gráta...ég gettttt ekki fundið útur þessu:(

Endilega skiljiði eftir comment sem lýsir reynslu ykkar á þessari ógeðslegu dverga mynd. takk!

 

http://www.69.is/openlink.php?id=82807

 

Góðar stundir,Eybba


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.09.2007 00:47:12 / eybbublogg

PISTILL VIKUNAR... tileinkaður Snædísi Ósk Guðjónsdóttur!

Ég heyrði í snædísi í kvöld,talaði við skvísuna í 49 mínutur..um aðalega ekkert! En ég kom með þá góðu hugmyind í lokinn að hún myndi gera bloggfærslu um mig...BARA MIG!!! og viti menn..skömminn fór að mínum orðum og bjó til þessa flottu færslu um eybbuna. set linkinn hérna undir í lokin svo þið getið lesið hana.

Hvar á ég að byrja...ég hef alltaf þekkt Snædísi. Annað eins kvikindi finnst ekki hér á jörð og þó að víðar væri leitað í sólkerfinu. Hún er fyndin á allan hátt,það er ALLT fyndið sem kmeur útur henni...einstakur húmoristi þar á ferð. Þegar ég rifja upp í huganum þær stundir sem við höfum átt saman (nú hljóma ég eins og væmin ástarsaga sem ætluð er eldriborgurum) en hú kers, þá standa MARGAR stundir uppúr. Td eins og þegar snædís BRAUT rúmið sitt á verbúðinni hérna forðum daga. Þá fögru nótt var hún með þáverandi ástmanni sínum sem verður ekki nefndur til nafns en hann er frá dhúpavogi. Ég var í sama herbergi og hún snædís mín,en sem betur fer ekki þegar þetta atvik átti sér stað. Ég sé þetta fyrir mér í huganum,Snædís og þáverandi ástmaður að hafa það kósý og notarlegt...og svo byrjaði fjörið sem tók fljótt enda því rúmið var ekki byggt fyrir svona hamagang. En eflaust er þetta ekki eins og þetta var... kanski var hún bara að hósta þegar rúmið gaf sig...en í huga mér er þetta hinsvegin. Önnur stund sem stendur uppúr er þegar ég var með þáverandi kærasta mínum og snædís var eins og jóakim aðalönd og svaf með annað augað opið og bæði eyrun blaðkandi úr ofurheyrn. Já það var gaman að koma í vinnuna þann morgun og ég get með stollti sagt VINNUNA..því ég já,vann eins og skeppna. Snædís er alltaf hress og skemmtileg....alltaf tilbúin í kvikindisskap. Það sannaði sig nú bara best þegar hún hræddi mig næstum til dauða um daginn. Já það er ekki hverjum sem er fært að gera slíka hluti. Hún er líka einstök þessi elska. Snædís er þrjósk manneskja og gerir það sem hún ætlar sér...það sannar sig best ef mér leifist að taka það sem dæmi að það eru 6 ár síðan við fórum á síldarvertíð á Djúpavogi...og þar er hún ENN!!! Henni langar ekkert að vera þar(að ég held..ég held að henni langi meira að koma suður) EN HÚN ÆTLAR AÐ VERA ÞAR...og þar verður hún.

Mest á ég þó af fylleríis minningum af snædísi minni. Enda eðal róni þar á ferð. Það er stundum hálf tómlegt að sjá hana án þess að hún sé mér bjór í hendinni. Það er svona eins og að sjá hund án trýnis...passar ekki :S  Hún hefur nú samt róast svona í seinni tíð...síðan hún eignaðist yndislega krúttumolan hana Selmu líf:)   En hún laumast nú örugglega stundum á sínar heimaslóðir (pöbban á djúpavogi)

Ég gæti haldið endalaust áfram að tala um hana. Snædís er kallalaus í augnablikinu en hún er með fisk á augnlinum og hann er búin að bíta á....en þau eru svo hrædd um að skemma veiðistöngina að þá þora ekki að draga í land. Það skilur þetta engin nema hún sjálf þannig að fyrir ykkur hinum er þetta bara bull...en snædís veit hvað ég meina;)

Ég skora á hana að gera annan EYBBU pistil við tækifæri:)

Hér er linkurinn á Ebbubloggið sem snædís gerði

http://dyrid.bloggar.is/

Góðar stundir,

Eybba


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 22:04:13 / eybbublogg

ó je...life gós on.

sælt veri fólkið.

Ég hef verið að lesa commentinn hérna síðustu daga og þau eru bara BRILLIANT!!!! Jenný vildi fá að vita hvernig mér hefði liðið síðustu daga...og svarið er: ALVEG GLIMRANDIIII!!!!! Ég var í bústað um helgina með Rúnsa og Tobbu,Tengdamömmu og Tengdapabba,Einari og dódí og börnum og Halldóru og Tyrfa og börnum. ÞAÐ vaar bara þrælgaman...:D svo á ssunnudagskvöldið hittumst við Jenný,Katla,Brynka og Eva og fórum út að borða og í keilu:D það var bara SNILLD:D ekkert smá gaman..... oooo maður var farin að sakna allra..enda var MIKIÐ hlegið!!! Þetta var svo gaman að við ákváðum að gera þetta mánaðarlegt!!! Væri til í að ALLAR vinkonur mínar myndu þekkjast...maður ætti kanski að hóa liðið einhverntíman saman? :D

En eníveis...Hef ekkert að segja EN BARA VILDI EKKI LÁTA ÞAÐ LÝÐAST AÐ SNÆDÍS ÓSK GUÐJÓNSDÓTTIR VÆRI AÐ STANDA SIG BETUR EN EYBBAN Í BLOGGINU!!!! Sjénsinnnn....

OG  ég óska Svanhvíti og Laufey GÓÐRAR FERÐAR Á MORGUN TIL MÍNIAPPOLIS (kann ekki að skrifa þetta) Á MEÐAN ÞIÐ VERSLIÐ Í MALL OF AMERICA ÞÁ SKULUÐ ÞIÐ MUNA EFTIR GREYYYJIÐÐÐ EYBBUNNI SEM SITUR EIN HEIMA Á ÍSLANDI OG KOMST EKKI MEÐ...

Góðar stundir....

Eybba.

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.08.2007 04:03:50 / eybbublogg

Eybba var TEEEEKKKKIIIINNNNN!!!!!

Ég ætla að lísa atburðarrásinni fyrir forvitna lesendur.

 Klukkan er að verða hálf tvö að nóttu til. Laufey vinkona er nýfarin heim. Rúnar setur ostapopp í skálar og hellir kókí í glös,hendir king of queens í tækið og við ætlum að hafa það viðbjóðslega kósý...Eybjörg ætlar að fara að pissa áður en haldið er inní stofu. Síminn hringir.

"þetta er boði.ýttu á einn til þess að hlusta,tvo til þess að hafna" Eybjörg ýtir á einn.

"þetta eru skilaboð frá almannavörnum ríkisins.vegna mikillar ólgu í eldvörpum eru íbúar suðurnesja beðnir um að leita í næsta skóla og taka rútu til hafnafjarðar þar sem er verið að setja upp neyðarskýli.takk fyrir"

Eybjörg missir andan í smá stund. fer í öðrum heim beint í skó og grípur jakkan og fer í hann öfugan. næsta sem Eybjörg man að hún stendur inní stofu og heyrir Rúnar segja.."HA? Eldgos..hvað ertu að meina?" Eybjörg hleypur öskrandi inní herbergi "TOBBA...VAKNAÐU...VIÐ VERÐUM AÐ FARA" Eybjörg nær ekki andanum og segjir við Rúnar að hann verði að sjá um að vekja hana og klæða...Eybjörg Labbar út. Hringir í svanhvíti og spyr hvort hún hafi fengið boða. Svanhvít kveðst ekki hafa fengið slíkan boða. Eybjörg Biður hana samt að vekja barnið sitt og fara uppí skóla í rútuna.því næst hringir Eybjörg Skelfingu lostin í 112,neyðarlínuna. þar sem Eybjörg gat vart talað,því hún náði ekki andanum þurfti hún að endurtaka söguna 2. Maðurinn bað Eybjörgu að bíða á línuni. Maðurinn kemur aftur á línuna og segjir Eybjörgu að þeir kannist ekki við að það sé neitt eldgos á suðurnesjum í aðsigi. Eybjörg Leggur á. Eybjörg Hringir í Laufey vinkonu sína sem á það til að vera jafn hrædd og ýmindunarveik og eybjörg þegar að það kemur að vissum hlutum.þetta var vanhugsað hjá eybjörgu. Laufey kvaðst heldur ekki hafa fengið neinn boða! í þessum töluðu orðum,stendur Eybjörg útí myrkrinu og rigningunni og skimar um. Það er bara einn strákur á röltinu niður götuna með bjór í hendi. Ekkert að ske. Þá labbar Rúnar út og tjáir Eybjörgu að þetta hljóti bara að vera grín. Eybjörg og Rúnar athuga í sameiningu málið og hlusta aftur á boðan. Rúnar segir að þetta sé pottþétt grín en Eybjörg er ekki svo viss...kanski vissi neyðarlínan bara ekki af þessu enþá.

Símin hringir aftur. "þetta er hjá almannavörnum ríkisins" er sagt og heyrist mikill hlátur þar á bakvið. EYBBA VAR TEKINN....

Ég vil þakka öllum sem stóðu að hrekknum. AUÐI,KÖTLU,HELGA,SNÆDÍSI OG JENNÝ. jájá,ég viðurkenni fúslega að ég átti þetta skilið. EN HEFNDIN ER SÆT þið megið ekki gleyma því.

Góðar stundir,

Eybba.


» 13 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 20:14:10 / eybbublogg

spegg og eikon

já ef ég væri í hljómsveit þá myndi hún heita það!!! nó dábt.

Hef ekkert að segja en ég ætla ekki að slappast niður í blogginu aftur...það er á hreinu. Var bara að vinna í dag,það var bara æði!!! kom svo heim EIN!!! Svanhvít bauð Tobbunni minni heim að leika við Sólveigu Rut..þannig að ég fór bara heim og hékk í tölvunni og eeerrr þar ennnnn!!!! víbbí... já það þarf að þrífa hér...en það er skemmtilegra í tölvunni,svo er ég líka búin að heyra að heimilstörf valdi heilaskaða8| og ég ætla nú ekkkki að fara að taka áhættuna á því. Hef líka heyrt að konur sem þvo mikin þvott og brjóta saman geta fengið hjartasjúkdóma....jájá svo las ég það að ef maður væri mjór væri maður í mikilli hættu á að verða blindur!!!! Djísus...það er eins gott að halda sér bara sem feitustum og lötustum...og reykja eins og maður getur. því nýjustu fréttir herma að það sé hollt. :D

En ég er að spá í að hafa smá þankabrot Eybbu sem fastan lið á síðunni minni... kanski að kalla það Þankabrot dagsins? það verður eitthvað fróðlegt,það efast ég ekki um. svo á ég líka svo gáfaða commentera sem geta kanski varpað ljósi að hinar ýmsu vangaveltur. þetta verður eitthvað spennandi.  ég byrja bara núna...

þankabrot dagsins:

Hef alltaf spáð mikið í geimnum....er hann endalaus?..já hann er það,ég þoli ekki fólk sem segir að geimurinn sé ekki ENDALAUS...hvar ætti hann svosem að enda??? jújú ætli það sé ekki veggur þarna úti þar sem allt stoppar bara?? Svo annað...AUÐVITAÐ er til ANNAÐ FÓLK EN Á ÞESSARI PLÁNETU...heldur í alvörunni einhver að við séum eina fólkið í þessum ENDALAUSA GEIMI? cccccoooommmm oooonnnnnn!!!!!! já þetta pirrar mig mikið að spá í þessu...og ég get alveg farið með þetta í hringi í hausnum á mér... spáiði bara í því hvað það er mikl spúkýness í orðinu ENNDALLLAAAUUUSSSTTT8|8| ENDAR ALDREI. ENDALAUST.

já það væri gaman að sjá COMMENT um þetta:)

Góðar stundir,

Eybba.


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 20:52:03 / eybbublogg

brrrrrr,,,pritty DAM COLD here in ICELAND!!!

Já nú hef ég efni á að tala eins og manneskja sem þori í flugvél til heitari landa...því ég þori í flugvél:lol:  Það var rosa næs að koma heim og hitta alla....en nú langar manni bara aftur til Danmerkur!!! Þið gætuð ekki trúað því þótt ég mundi reyna að lísa því hvað það var ÆÐISLEGT þarna!! Ó Mææææ GOoooood!  Vorum þarna á ÆÐISLEGUM stað,steikjandi sól og hiti allan tíman (fyrir utan einn dag) Grillað á Hverju kvöldi eðal steikur ala gylfi&rúnar,labbað um köben (sem var btw ÆÐISLEGT,mér var EKKERT illt í löppunum og það fór ekki fram hjá neinum sem gæddir voru tvem augum hvað ég var í gígantísku formi.) hehehe En þetta var allt saman FRÁBÆRRT í ALLA STAÐI!!! já auðvitað má ekki gleyma að segja frá því að það var mikið spilaður forseti og trivial á kvöldin og auðvitað bara ég sigur úr bítum. neiii kanski ekki í Trivalinu (Gylfi átti allan sigurinn þar) EN ég tók Forsetan með trompi....alveg satt...án gríns. :$ En nú er klukkan að verða níu hér,sem þýðir að klukkan er að verða 11 í danmörku og dadda er örugglega að tendra kertin úti á svölum as ví spík og ná í einn kaldan inní ískáp:( MISS YOU GUYS SOOOO SOOO MUCH!!!! En verð að fara...kær hilsen í bilen:)

góðar stundir, EYBBA


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.08.2007 14:58:15 / eybbublogg

Henda inn færslu fyrir fólkið sem er svo duglegt að commenta:)

jæja nú fer að styttast í að Eybba og family komi heim:) eigum flug klukkan 1400 á morgen;) ooo hvað maður á eftir að sakna þess að vera hérna á sólbakkanum...þetta er bara næsast sko:) Ennn er að fara að spila núna við Döddu og Brekan minn,Arnór og Tobba eru að horfa á tv og Rúnar og Gylfen skruppu smá rölt niður á nýhöfn. Edith og Helgi koma á eftir hingað til okkar og ætlum við að fara eitthvað í kvöld út að borða...næss:) Edith ætlar semsagt að standa við KÓK og SÍGÓ í danmörku:) hehehehe

 EN ENDILEGA COMMENTtiði HÉRNA HJÁ MÉR ELSKURNAR MÍNAR,MÉR ÞYKIR SVO VÆNT UM AÐ SJÁ KVEÐJUR FRÁ IKKER...ERLAN MÍN ER SÚ EINA SEM ER AÐ STANDA SIG Í STYKKINU:O JÁ HÚN Á KLAPPEN PO SKILED.0

gÓÐAr stunder.

Eybbó the hippó

ps: Ég og KIM LARSEN erum like this X


» 7 hafa sagt sína skoðun

10.08.2007 22:15:06 / eybbublogg

jeg taler from Danmark,Kopenhagen

je gode gæster,nu snakker jeg bare dansk.de er rose gammen í Kopenhagen,nu er jeg i solbakken i kopenhagen med Döddu uti po svalir med kertalys og ene öl. De er rosen gammen hjer i solbakken,vid griller gode stæker á hverjen kvölden. i dag vid gor í Bakken,det er en TIVOLI.vid taker lest þanged og det var roesen spænnenden. jeg geter ikke taled íslænsku længer. tid værðið ad fyrirgefen ef tid skiljer ikke mig. po morgen gor jeg po striked og værsler í HM.svo gor jeg í de FISKETORFED og værsler mere. Tad verdur spænnenden. Nu jeg har tu gó. Jeg langer so meget í smoken,jeg ilsker ad rokja vindlinger. Nu er dadda ad bída po mig,henner læðesten rosen meget. Runar og Gylfen eru po fylleríen á 11 hæðen í okker blokken. þar er en Baren. Tobba og Arnór sofer nuna og Breki er po baren lika,en hann drikker ikke öl,bara koken. nu segjir jeg kær hilsen í bilen og jeg ósker ikker gode helger. Endilæg commenten po mine blogger,jeg ilsker ad læsa det.

heij,heij

goder stunder

Eybba sem taler from KOPENHAGEN,Solbakken.

8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Skrítið